top of page

Sjúkraþjálfun Selfoss býður upp á sérhæfða hópaþjálfun fyrir einstaklinga sem eru í krabbameinsmeðferð eða hafa lokið henni. Hópaþjálfunin er í samstarfi við Krabbameinsfélag Suðurlands og er ætluð þeim sem vilja byggja sig upp á öruggan og markvissan hátt með faglegri leiðsögn.

​

Tímarnir eru kenndir af sjúkraþjálfara. Áhersla er lögð á að mæta hverjum þátttakanda þar sem hann er staddur og aðlaga æfingar að líkamlegri getu, einkennum og dagsformi hvers og eins.

 

Umsjón: Stefán Magni Árnason

Æfingarnar miða meðal annars að því að:

  • Auka styrk og þol

  • Bæta hreyfanleika og jafnvægi

  • Vinna með verki og stirðleika

  • Vinna með þreytu og orkustjórnun

  • Bæta líkamsvitund

  • Auka öryggi og sjálfstraust í hreyfingu

​Þjálfunin

Fer fram tvisvar í viku, 60 mínútur í senn, í sal Sjúkraþjálfunar Selfoss. Unnið er í hópum þar sem æfingar og álag eru aðlöguð að getu og þörfum hvers og eins.

Markmið

Markmið hópaþjálfunarinnar er að styðja einstaklinga í og eftir krabbameinsmeðferð við að endurheimta og viðhalda líkamlegri færni, auka styrk og úthald og stuðla að aukinni virkni og betri líðan í daglegu lífi.

Hópaþjálfun fyrir einstaklinga í eða eftir krabbameinsmeðferð

Sjúkraþjálfun Selfoss ehf - kt: 521021-0630                                                                                         © 2022 Sjúkraþjálfun Selfoss ehf. Allur réttur áskilinn

bottom of page