top of page

Sjúkraþjálfun Selfoss býður upp á sérhæfða hópaþjálfun fyrir einstaklinga með ME, POTS og Long Covid. Þjálfunin er aðlöguð að getu, einkennum og dagsformi hvers og eins, með áherslu á örugga og einstaklingsmiðaða nálgun.

​

Í boði eru tveir mismunandi tímar með ólíkar áherslur, þannig að þátttakendur geti valið þá nálgun sem hentar þeim best.

 

Umsjón: Stefán Magni Árnason

Verkir, liðkun og bandvefslosun

  • Þessi tími hentar sérstaklega þeim sem glíma við verki, stirðleika og spennu í líkamanum. Æfingarnar eru rólegar og áhersla lögð á að minnka spennu og bæta hreyfanleika.

  • Unnið er meðal annars með:

  • bandvefslosun

  • liðkun og hreyfanleika

  • verki og verkjastjórnun

  • öndun og slökun

  • líkamsvitund

  • örvun sogæðakerfisins

  • Æfingarnar eru aðlagaðar að einkennum og þoli hvers og eins og geta farið fram liggjandi, sitjandi eða standandi eftir þörfum.

Styrkur og þol

Þessi tími er fyrir þá sem vilja vinna markvissar með styrk og þol innan þeirra marka sem líkaminn þolir. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða uppbyggingu og að stjórna álagi með tilliti til einkenna.

Unnið er meðal annars með:

  • styrktaræfingar

  • þol og úthald

  • jafnvægi og stöðugleika

  • hreyfanleika

  • orkustjórnun og pacing

Mikil áhersla er lögð á að þátttakendur læri að þekkja viðbrögð líkamans við álagi og finni jafnvægi milli hreyfingar, álags og hvíldar.

Fyrirkomulag

Tímarnir eru kenndir af sjúkraþjálfara, og fara fram í sal Sjúkraþjálfunar Selfoss.

Hver tími er 45–60 mínútur og unnið er í litlum hópum til að hægt sé að aðlaga æfingar og álag að hverjum þátttakanda.

Markmiðið er að skapa öruggt umhverfi þar sem einstaklingar með ME, POTS og Long Covid geta unnið með hreyfingu og einkenni á sínum forsendum og fengið faglega leiðsögn við að finna þá nálgun sem hentar þeim best.

Hópaþjálfun fyrir einstaklinga með ME, POTS og Long Covid

Sjúkraþjálfun Selfoss ehf - kt: 521021-0630                                                                                         © 2022 Sjúkraþjálfun Selfoss ehf. Allur réttur áskilinn

bottom of page